Jakki Hermanns var sleginn á 400 þúsund krónur Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 18. júní 2013 12:50 Hápunktur skemmtunarinnar var þegar þessi fjórir leiddu fjöldasöng, Dúrírarídúrírarídúrírei. Valli Sport, David James, Þorsteinn Hallgrímsson og Hermann Hreiðars flytja lagið með tilþrifum.
Golfmót Hermann Hreiðarssonar - Herminatior - tókst vel en það fór að þessu sinni fram á Leynisvellinum á Akranesi. Strax að loknu móti var farið með þátttakendur á Herrakvöld Hermanns, sem var haldið í húsi Iðu í Reykjavík, og þar tók við heljarinnar veisla; verðlaunaafhendingar, uppboð, happadrætti og allskyns skemmtiatriði að hætti Eyjamanna. Sigurvegarar í mótinu urðu þeir Hjalti Harðarsson og Heiðar Helguson sem sigruðu á 44 punktum. Í öðru sæti urðu tónlistarbræðurnir Örlygur Smári og Beggi Smári. Í þriðja sæti urðu svo þeir Guðlaugur Magnússon og Gísli Steinar Gíslason en þeir voru jafnframt kjörnir best klæddu keppendurnir.Eiður Smári Guðjohnsen og Kolbeinn Sigþórsson létu sig ekki vanta í veislu Hemma vinar síns og kollega úr boltanum.Herminator er fjáröflunarmót, golfað til góðs, en þegar þetta er skrifað liggur uppgjör ekki fyrir né heldur hvaða málefni það er sem Hermann hyggst styrkja. Miðað við þær fúlgur fjár sem skiptu um hendur á uppboðinu má gera ráð fyrir að vel hafi til tekist að afla fjár til góðs málefnis. Þannig bauð Guðni Rafn Eiríksson 400 þúsund krónur í jakka Hermanns og var hann honum sleginn. Sjá fleiri myndir hér.Guðni Rafn Eiríksson var stjarna uppboðsins og þegar Hermann reif sig úr jakkanum fína og bauð hann upp lét Guðni sig ekki muna um að bjóða 400 þúsund krónur í flíkina sem var honum slegin. Jakkinn er flottur og málefnið gott.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Fleiri fréttir Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Sjá meira