Skömmu fyrir miðnætti í nótt var lögreglu á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í austurborginni. Þar voru teknar tvær tölvur. Málið í rannsókn hjá lögreglu.
Þá gista 6 fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þrír sem óskuðu eftir gistingu og þrír sem þurfa í yfirheyrslu síðar í dag vegna óafgreiddra mála, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
