Franska konan enn ófundin 1. júní 2013 09:19 Mynd tengist efni fréttarinnar ekki beint
Leit að konu sem saknað er í Heydal í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Vestfjörðum sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem lýst er eftir konunni, sem er frönsk. Hún heitir Maylis Lasserre. Hún er grannvaxin, um 170 cm á hæð, hrokkinhærð með fremur sítt skolleitt hár sem hún oftast greiðir í tagl. Hún var í gær klædd gallabuxum, og prjónasjali. Konan mun hafa ætlað í stutta gönguferð frá Heydal um kl.10:00 í gærdag. Þegar hún skilaði sér ekki aftur hófu ábúendur í Heydal og nágrenni eftirgrennslan og leit. Á ellefta tímanum í gærkveldi var lögreglunni tilkynnt um konuna og að leit heimamanna hafi ekki borið árangur. Svæðisstjórn björgunarsveitanna (Landsbjargar) á norðanverðum Vestfjörðum var kölluð út og í framhaldinu fóru tugir björgunarsveitarmanna til leitar í Heydal og nágrenni. Í nótt voru 30 björgunarsveitarmenn við stanslausa leit á svæðinu. Sérstakir leitarhundar voru og eru notaðir við leitina. Þá tók Landhelgisgæslan þátt í leitinni með þyrlu í alla nótt. Nú eru um 50 björgunarsveitarmenn við leit og er búist við að þeir verði um 100 um hádegið. Björgunarsveitarmönnum er alltaf að fjölga á svæðinu enda koma þeir frá öllum Vestfjörðum og einnig frá Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu. Hugsanlegt er að konan hafi gengið út á þjóðveginn í Mjóafirði og fengið far með einhverjum þeirra bifreiða sem leið áttu um Ísafjarðardjúpið í gær. Þeir sem hugsanlega hafa orðið Maylis varir eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum í síma 450 3730 eða 112. Þessu er sérstaklega beint til ökumanna sem leið áttu um Ísafjarðardjúpið í gær.
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Fleiri fréttir Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Ómerktir í von um að góma vasaþjófa Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Sjá meira