Nóg um að vera á Sjómannadegi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 2. júní 2013 12:12 Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á höfninni í dag. MYND/HÁTÍÐ HAFSINS
Fjölbreytt dagskrá verður um allan bæ í tilefni Sjómannadagsins í dag. Hátíðarhöldin eru einstaklega vegleg í þetta sinn, þar sem einnig er haldið upp á 75 ára afmæli Sjómannadagsins í ár. Þá eru heil 100 ár síðan framkvæmdir hófust við höfnina í Reykjavík. Hátíð hafsins hófst í gær á Hafnardegi, þar sem mikill fjöldi fólks gerði sér glaðan dag við höfnina í Reykjavík. Dagskráin heldur áfram í dag, en við bætist sérstök hátíðardagskrá þar sem sjómenn verða heiðraðir fyrir störf sín. Klukkan 12.30 leiddu Skoppa og Skríta og Maxímús Músíkús sjómannadags- skrúðgöngu fyrir börnin frá Hörpu ásamt lúðrasveit. Skrúðgangan endaði úti á Granda þar sem hátíðardagskrá fer nú fram. Róðrakeppni, björgun úr sjó og sjávartívólíið Bryggjusprell eru meðal dagskrárliða. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna hér. Dagmar Haraldsdóttir, framkvæmdarstjóri Hátíðar hafsins, segir mikilvægt að halda utan um þann menningararf sem sjómannadagurinn geymir. „Sjómannadagurinn er stór hluti af okkar menningu. Reykjavík væri ekki þessi borg sem hún er í dag ef að höfnin hefði ekki verið byggð. Við leggjum áherslu á þetta með því að tengja allar uppákomur, tónlist og veitingar við hafið og menningu þess. Það er mikilvægt að börnin okkar að átta sig á því hvað þetta er stór hluti af okkar samfélagi.“ Fjölbreytt dagskrá verður um land allt í tilefni dagsins. Það var mikið um gleði á Bryggjusprell við höfnina í gær. Hátíðarhöldin halda áfram í dag.MYND/HÁTÍÐ HAFSINS
Mest lesið Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Erlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Fleiri fréttir Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Sjá meira