Innlent

Nöfn þeirra sem létust í Þjórsárdal

Hjónin sem létust í hjólhýsi sínu í Þjórsárdal í gær hétu Edda Sigurjónsdóttir, fædd 15.júlí 1945, og Alexander G Þórsson, fæddur 13.mars 1941, og voru til heimilis að Lækjasmára 2 í Kópavogi.

Þau láta eftir sig þrjú uppkomin börn og átta barnabörn.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi og tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins vinna að rannsókn málsins.

Sérstaklega er verið að skoða miðstöðvarbúnað hússins og loftræstingu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×