Innlent

Óskað eftir vitnum að umferðarslysi

Mynd úr safni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð í Skipholti í Reykjavík, á móts við veitingastaðinn American Style, rétt fyrir hálfþrjú í dag.

Þar varð gangandi vegfarandi fyrir hvítum Toyota Land Cruiser, en tilkynnt var um slysið klukkan 14:26.

Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×