Íslenski dansflokkurinn og sinfónían saman í fyrsta sinn í Eldborg Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. maí 2013 16:36 Frá æfingu - Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenski dansflokkurinn á Eldborgarsviði. Mynd/Listahátíð
Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands fara í eina sæng á Listahátíð í Reykjavík um helgina. Þar munu þau flytja tvö af frægustu danstónverkum tónskáldsins Igors Stravinskis á Eldborgarsviði. Þetta verður í fyrsta sinn sem dansflokkurinn og sinfónían vinna saman í Hörpu. Lára Stefánsdóttir, listrænn stjórnandi dansflokksins, er virkilega spennt fyrir samstarfinu sem hefur verið í rúmt ár í bígerð. „Það er mjög spennandi að dansflokkurinn og sinfónían hafi tekið höndum saman til að gera þetta. Verkið er líka sögulegt að því leiti að verið er að sýna það víða um heim í tilefni 100 ára afmælis Stravinskys.“ Lára hefur unnið náið með Melkorku Magnúsdóttur danshöfundi og Filippíu Elísdóttur búningahönnuði að uppsetningu sýningarinnar og segir verkið einstaklega fallegt fyrir augað. „Þetta hefur tekið mjög skemmtilega stefnu. Það er auðvitað allt öðruvísi að sýna í Eldborgarsalnum og í Borgarleikhúsinu vegna þess að Eldborg er náttúrlega ekki leikhús. Við þurfum að ramma verkið inn með sterkum ljósum og þess vegna höfum við líka verðið í nánu samstarfi við mjög góðan ljósahönnuð “, segir Lára. „Svo munar auðvitað mjög miklu að sýna í sal sem tekur 1800 manns, en stóri salurinn í Borgarleikhúsinu tekur ekki nema 500 í sæti. Þetta er í fyrsta skipti sem við sýnum í Eldborg en vonandi ekki það síðasta.“ Sýningarnar verða 24. og 25 maí. Hægt er að nálgast miða hér. Frá æfingu - Lára Stefánsdóttir segir sýninguna verða einstaklega fallega fyrir augað.Mynd/Listahátíð
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira