Furðar sig á gamaldags hugmyndum ungra manna Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 22. maí 2013 09:49 Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. „
Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja,“ segir Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra, um fyrirhugaða aflagningu ráðuneytisins. Ekkert umhverfisráðuneyti verður í nýrri ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, en umhverfismál verða þess í stað sett undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Svandís segist ekki hafa átt von á þessu og segir að hætt sé við því að náttúruverndarsjónarmið verði undir. „Það vekur mann til umhugsunar að þessir ungu menn skuli hafa svo gamaldags hugmyndir sem þessar,“ segir Svandís og bendir á að umhverfismál séu almennt í uppsveiflu. „Þeim er að vaxa ásmegin, enda málaflokkurinn einfaldlega það aðkallandi, sérstaklega í ljósi viðfangsefna nýrrar aldar. Við erum líka sífellt að verða meðvitaðri um mikilvægi náttúruverndar, sem grundvöll fyrir farsælli uppbyggingu í ferðaþjónustu. Þessi sýn þeirra virðist fela það í sér að þeir telji málaflokkinn minna virði og það vekur spurningar um það hvort þeir hafi haft til þess pólitískt umboð að draga úr vægi hans. Ég minnist þess ekki að um þetta hafi verið rætt í kosningabaráttunni.“ Svandís segir ljóst að hagsmunir verndar og sjálfbærniviðmiða eigi ekki alltaf samleið með nýtingu. „Þegar verndarsjónarmiðin og nýtingarsjónarmiðin togast á er mikilvægt að sjálfbærnin sé alltaf höfð að leiðarljósi. Þegar maður er kominn með nýtingu og vernd að einhverju leyti undir sama þak er hætt við því að verndarsjónarmiðin verði undir.“
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Sjá meira