Segir kafara hafa vitað af reglum svæðisins Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. maí 2013 12:02 Frá vettvangi við Silfru í gær. Mynd/Friðrik „
Þessi maður má þakka fyrir að vera á lífi,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, um slys sem varð í þjóðgarðinum í gær. Norðmaður var hætt kominn þegar hann missti meðvitund við köfun í Silfru og sökk til botns. Honum var komið til bjargar en afþakkaði frekari aðstoð þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn. „Hann er þarna einn síns liðs, að vísu með fylgdarkonu en hún var ekki í köfun. Það verður honum til lífs að þarna eru tveir menn að kafa, mjög öflugir fagmenn frá Ísafirði, annar þeirra lögreglumaður og hinn vélstjóri, vörpulegir Íslendingar. Þeir verða varir við hann þegar hann sekkur og draga hann upp helbláan og meðvitundarlausan og hefja strax lífgunartilraunir. Hann væri ekki hérna megin móðunnar ef ekki hefði verið fyrir þá.“ Ólafur segir ljóst að maðurinn hafi þverbrotið reglur og sýnt af sér gáleysi. „Fyrir nokkrum mánuðum voru settar stífar og skýrar reglur um köfun í Silfru. Við setjum til dæmis þau skilyrði að menn tilkynni sig í þjónustumiðstöðinni okkar eða á netinu áður en þeir kafa, og greiði 1.000 krónur fyrir köfunina. Ein af þessum reglum er síðan sú að það má enginn kafa einn. Þessar reglur eru aðgengilegar á heimasíðunni okkar en líka á skiltum við bílastæðið og þar sem farið er niður stigann í Silfru. Ég heyrði í gær að maðurinn hefði verið leiddur að þessum skiltum og bent á þetta þannig að hann fór vitandi vits í gjána.“ Aðspurður hvort einhver eftirmál verði af atvikinu segir Ólafur það vera í skoðun. „Við erum að meta það núna ásamt Siglingastofnun og lögreglu hvort gripið verði til aðgerða gegn manninum. Það hafa orðið mjög alvarleg slys þarna, núna síðast fyrir um hálfu ári síðan, þannig að við hljótum að taka þetta mjög föstum tökum. Við ætlumst til að þessum reglum verði framfylgt.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira