Vill skoða allar hugmyndir Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 26. maí 2013 11:13 mynd úr safni „
Það er margt gott í þessari fjárfestingaáætlun og því besta munum við fylgja eftir,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sem nú situr fyrir svörum í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni. „Ég talaði um stöðu ríkissjóðs rétt eftir kosningar og forsendurnar fyrir þessari fjárfestingaáætlun eru ekki til staðar eins og sakir standa, en hins vegar er hægt að breyta þeim býsna hratt.“ Sigmundur talaði um stofnun leiðréttingarsjóðs sem Hægri grænir töluðu um í aðdraganda kosninganna og honum þykir hugmyndin ágæt. „Við höfum verið að skoða aðrar útfærslur. Ríkisstjórnin verður að vera reiðubúin til að skoða allar hugmyndir, sama hvaðan þær koma. Það hefur reynst mér vel frá því ég byrjaði í pólitík að leita til þeirra sem best þekkja til á hverju sviði hvort sem þeir eru innan flokksins eða utan hans. Því mun ég halda áfram fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.“ Sigmundur segir nauðsynlegt að ná tökum á ríkisrekstrinum og verðbólgunni, og bætir því við að líklega sé afnám hafta stærsta úrlausnarefnið. „Það er allra hagur að búa til þær aðstæður að hægt sé að afnema höftin. Og þegar allir eru með sameiginlega hagsmuni er það auðveldara.“ Fyrsta hluta viðtalsins við Sigmund má heyra í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Erlent Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Innlent Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Innlent Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Innlent Fleiri fréttir Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Fjögur ár frá innrás Rússa og milljarðar bætast í ríkiskassann Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Lausir endar í Edition-málinu „Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum áföllum“ Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Biðja fólk um að fóðra ekki fuglana í kirkjugörðunum Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Stór hluti hærra skrásetningargjalds fari í að borga veitingareikning HÍ Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið „Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Vopnin ekki til að drepa, heldur verja „Mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn“ Áfall að vera með eld í bakgarðinum Umferðartafir á meðan rútunni er komið burt Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Markmiðið ekki að höfða til kvíða aðstandenda Skilorð fyrir vopnaðan nytjastuld Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Mælir gegn heilskimun Intuens Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Stefnuræða Þorgerðar Katrínar og gróðureldarnir Enn ekkert ákveðið um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Bein útsending: Stefnuræða Þorgerðar Katrínar í mannréttindaráðinu Síbrotagæsla eftir afskipti lögreglu tvo daga í röð Sjá meira