Sumarþing kallað saman í byrjun júní Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. maí 2013 18:30
Sumarþing verður kallað saman fyrstu dagana í júní. Forsætisráðherra segir einhverjar skattalækkanir jafnvel verða lagðar þar fram. Stórar aðgerðir sem varða skuldamál heimilanna bíði hins vegar til haustsins. Forsætisráðherra á von á að sumarþing verði kallað saman í kringum 3. eða 4. júní. Þó endanleg dagskrá liggi ekki fyrir er ljóst að ríkisstjórnin ætlar að leggja fram nokkur mál. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að á þinginu verði gefið til kynna hverjar áherslur ríkisstjórnarinnar verði í haust. „Við erum til dæmis að velta fyrir okkur skattamálunum en þar reyndar er mjög mikilvægt að hafa sem mest samráð við aðila vinnumarkaðarins, bæði launþegahreyfingarnar og atvinnurekendur, til þess að þetta nýtist í að mynda einhverskonar þjóðarsátt vegna þess að til þess að hægt sé að ráðast í allar þessar breytingar til dæmis til þess að skattalækkanir skili sér áfram til neytenda þá þurfa allir að taka þátt í framhaldinu,“ segir Sigmundur Davíð. Hann á von á að einhverjar skattalækkanir verði jafnvel lagðar fram á sumarþinginu. Þá segir hann að líklegt að breytingar verði gerðar á veiðileyfagjaldinu og hækkun á gjaldi frestað. Kjör öryrkja og aldraðra verði leiðrétt vegna þeirrar skerðingar sem þeir urðu fyrir árið 2009. Varðandi skuldamál heimilanna segir hann ljóst að stóru aðgerðirnar í þeim málum verði ekki lagðar fyrir á sumarþinginu. „Þar erum við að tala um mál sem auðvitað tengist mjög stórum liðum öðrum eins og til dæmis uppgjöri á þrotabúi bankanna. Svoleiðis að þessar stóru breytingar munu ekki koma til strax á sumarþingi einfaldlega vegna þess að þær tengjast svo stórum málum öðrum sem að verið er að leysa úr. Það er þó auðvitað mjög mikilvægt að gefa stax til kynna á sumarþinginu hvert menn stefna og byrja strax að ráðast í aðgerðir sem að heimilin finna áhrifin af,“ segir Sigmundur.
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira