Sport

Flottur árangur hjá Ásgeiri

Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson.

Skotmaðurinn Ásgeir Sigurgeirsson tók þátt í heimsbikarmótinu sem fram fór í München í Þýskalandi.

Ásgeir hafnaði í 22. sæti af 70 keppendum í frjálsri skammbyssu. Skorið var ágætt eða 93, 91, 93, 96, 91 og 89.

Hann varð svo í 23. sæti af 105 keppendum í loftskammbyssu sem er verulega góður árangur. Hann skaut 577 stig (97 96 96 94 97 97) sem er samt þó nokkuð frá Íslandsmetinu sem hann setti fyrir skömmu 589 stig.

Ásgeir er sem stendur í 22. sæti á heimslistanum í loftskammbyssunni og í 13.sæti á Evrópulistanum. Árangur hans er því alveg í takt við stöðu hans því hann varð í 12. sæti af Evrópukeppendunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×