Sport

Auðunn fékk gull á EM

Auðunn Jónsson.
Auðunn Jónsson. mynd/valli
Kraftlyftingakappinn Auðunn Jónsson nældi sér í gullverðlaun í réttstöðulyftu á EM en mótið fór fram í Tékklandi.

Auðunn keppti í +120 kg flokki. Hann lyfti 352,5 kg í réttstöðulyftunni. Það dugði í gullið í greininni en Auðunn vildi fá gullið í samanlögðu líka.

Hann reyndi því við 372,5 kg en það fór ekki upp. Auðunn fékk því bronsverðlaun í samanlögðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×