Handtekinn eftir heimilisófrið - fær bætur frá ríkinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. maí 2013 15:29 Maðurinn sætti gæsluvarðhaldi í 28 tíma.
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða karlmanni 100 þúsund krónur í skaðabætur vegna þess að honum var haldið lengur í fangelsi en efni stóðu til. Maðurinn var handtekinn fyrir utan heimili sitt í Reykjavík skömmu fyrir hádegi sunnudaginn 5. febrúar í fyrra. Þá hafði eiginkona hans kallað til lögreglu þegar hún komst að því að hann ætlaði að aka bifreið sinni drukkinn með ungt barn þeirra með sér. Þegar lögreglan kom á vettvang sat maðurinn í framsæti bifreiðar sinnar og var búinn að festa barnið, tæplega þriggja ára stúlku, í öryggisbelti í aftursætið. Hann neitar því hins vegar að hafa ætlað að aka bifreiðinni heldur kveðst hann hafa farið út í bifreiðina með barnið til þess að draga andann og koma í veg fyrir að dóttir hans yrði vitni að frekara rifrildi þeirra hjóna. Þá segir í dómnum að rökstuddur grunur sé um að maðurinn hafi beitt konu sína og tólf ára dóttur þeirra ofbeldi. Í samtölum lögreglu við þær kom fram að þegar eiginkona hans var að reyna að koma í veg fyrir að hann færi í bíltúr með dætur þeirra hefði komið til átaka milli þeirra hjóna. Hefði stelpan gengið á milli og hefði stefnandi þá slegið til hennar og hent henni til. Maðurinn var handtekinn og honum haldið í fangaklefa í 28 klukkustundir. Hann stefndi ríkinu vegna handtökunnar og krafðist bóta. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að tilefni hefði verið til handtökunnar. Íslenska ríkinu hafi hins vegar borið, lögum samkvæmt, að láta manninn lausan innan við 24 klukkustundum eftir að hann var handtekinn. Ekki hafi verið tilefni til undanþágu frá þeirri reglu.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira