Rændi 10 ára stelpu í Vesturbænum og beitti kynferðisofbeldi Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. maí 2013 16:23
Karl á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en það var gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn var handtekinn í gær, en hann er talinn hafa brotið kynferðislega gegn stúlku á ellefta ári. Lögreglu barst tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan 17 í gær þegar foreldrar stúlkunnar höfðu samband. Stúlkan var þá nýkomin til síns heima í Vesturbæ Reykjavíkur. Málsatvik voru þau að stúlkan var á heimleið úr skóla á þriðja tímanum eftir hádegi þegar ókunnugur maður tók hana með valdi og setti í aftursæti bifreiðar sem hann var á. Ekið var með stúlkuna á afvikinn stað í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Þar er maðurinn talinn hafa brotið gegn stúlkunni. Að því loknu ók maðurinn með stúlkuna aftur í Vesturbæ Reykjavíkur og hleypti henni þar út, en þó fjarri heimili hennar. Þaðan gekk hún til síns heima. Á meðan frelsissviptingin stóð yfir hafði maðurinn í frammi grófar hótanir við stúlkuna.Gat gefið greinargóða lýsingu á manninum Lögreglan fór á heimili stúlkunnar um leið og tilkynningin barst, en í framhaldinu var hún flutt til skoðunar á sjúkrahús. Fulltrúi barnaverndaryfirvalda var kallaður til, en þá þegar var hafin umfangsmikil leit að brotamanninum og ökutæki hans. Bíllinn fannst nokkru síðar við heimili mannsins í Austurborginni, en maðurinn var innandyra í húsinu. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Handtöku mannsins má þakka stúlkunni sjálfri, en þrátt fyrir hræðilega lífsreynslu, gat hún gefið greinargóða lýsingu á manninum, bílnum sem hann var á og leiðinni sem hann ók. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, en þó ekki vegna mála af þessum toga. Í ljósi alvarleika málsins tekur lögreglan skýrt fram að slík mál eru afar fátíð. Lögreglan segir mikilvægt að foreldrar ræði yfirvegað við börn sín um þessi mál og kenni þeim hvernig bregðast á við ef þau lenda í slíkum aðstæðum.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira