„Allt morandi í glæpum í samanburði við Ísland“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 17. maí 2013 09:49 Íslendingar eru vel vopnaðir samkvæmt rannsóknum. Mynd úr safni
Bandaríski laganeminn Andrew Clark skrifar á vef BBC um tíðni ofbeldisglæpa á Íslandi og veltir því fyrir sér hvers vegna hún er jafn lág og raun ber vitni. „Ég hafði verið í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, en þar virtist allt morandi í glæpum í samanburði við Ísland,“ segir Clark, en hann kom í fyrsta skipti hingað til lands í fyrrasumar. Hann segir áætlaðar tölur um fjölda skotvopna á Íslandi vera um 90 þúsund, en það setur landið í 15. sæti yfir þau lönd í heiminum með flest skotvopn miðað við höfðatölu. Engu að síður hafi morðtíðni á Íslandi hæst verið 1,8 á hverja 100 þúsund íbúa á árstímabili frá 1999 til 2009, á meðan framin voru á bilinu 5,0 til 5,8 morð á hverja 100 þúsund íbúa árlega í Bandaríkjunum yfir sama tímabil. Clark segir ástæðu hinnar lágu tíðni ofbeldisglæpa margþætta. Meðal annars spili það inn í að 97% íslensku þjóðarinnar telji sig tilheyra millistétt eða verkamannastétt, og því sé engin spenna milli stétta, en það segir hann afar sjaldgæft. „Hér eru börn auðjöfra í sama bekk og önnur börn,“ hefur hann eftir Björgvini Sigurðssyni, þingmanni Samfylkingarinnar. Þá nefnir hann önnur atriði á borð við vopnleysi lögreglumanna og lítið magn harðra fíkniefna í umferð. Yfirvöldum hafi gengið vel að halda skipulagðri glæpastarfsemi niðri og gripið sé inn í þegar ákveðin tegund glæpa virðist fara vaxandi.
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Fleiri fréttir Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira