Vill vera vinur Eiðs Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 17. maí 2013 11:21 Andri hringdi í Eið en sambandið slitnaði.
Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson hefur fengið Sólmund Hólm til að hlaupa í skarðið fyrir Gunnu Dís Emilsdóttur í þættinum Virkir morgnar á Rás 2, en Gunna Dís er í fríi. Hafa þeir Sólmundur meðal annars bryddað upp á þeirri nýjung að syngja upplýsingar um færð á vegum. Hefur uppátækið vakið kátínu margra, en ekki allra. „Þetta mælist frekar betur fyrir en ekki,“ segir Andri í samtali við Vísi. „Fólk hefur gaman að þessu en auðvitað er einn og einn sem sem hefur það ekki. Þess vegna lesum við fyrst venjulega og endurtökum síðan í söng. Þannig að fólk fer ekki á mis við neinar upplýsingar.“ Einn þeirra lítt hrifnu er Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi alþingismaður og málfarsbloggari. Segir hann í bloggfærslu sinni um sönginn: „Það er ekki ofsögum sagt af fíflaganginum sem dagskrárstjórar láta viðgangast í þessum þætti Rásar tvö. Ríkisútvarpið finnur sífellt nýjar leiðir til að sinna öryggishlutverki sínu!“ Þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem Eiður gagnrýnir útvarps- og sjónvarpsmennsku Andra, og finna má fjölmargar bloggfærslur um þennan vinsæla fjölmiðlamann á Molabloggi Eiðs. Það er því eðlilegt að spyrja Andra hvort hann sé farinn að taka skrifin inn á sig. „Nei í rauninni ekki. Sumir segja að ef hann fílar það ekki þá er maður að gera gott. Svo ég vitni í skrif hans Bjarna,“ segir Andri, en fréttamaður Vísis segist ekki vita um hvaða Bjarna er rætt. „Nei ég segi svona. Hann er alltaf að vitna í einhverja gæja sem ég veit ekki einu sinni hvort þeir séu til. En ekki veit ég allt, í rauninni fæst. Ég ber engan kala til hans. Menn hafa mismunandi skoðanir. Það er ekki hægt að ætlast til þess að allir hafi gaman af þessari vitleysu.“Sambandið slitnaði Andri segist aldrei hafa hitt Eið, en þó hafi hann gert heiðarlega tilraun til að hafa samband við hann. „Ég hringdi einu sinni í hann og ætlaði að bjóða honum í þáttinn en einhverra hluta vegna slitnaði sambandið. Boðið stendur ennþá og ég vil ekkert meira en vera vinur hans og fá hann annað slagið til okkar í þáttinn til að leiðrétta okkur á meðan við erum að fara rangt með staðreyndir og mál. Eiður er einn af þessum náungum sem ég held að sé gaman að grilla með.“ Andri segir föður sinn sérstakan aðdáanda bloggsíðu Eiðs. „Hann hefur rosalega gaman af þessu. Það er varla að pabbi hringi í mig án þess að segja mér frá því nýjasta sem Eiður var að skrifa.“ En tekur Andri mark á aðfinnslum Eiðs? „Já já. Ábendingar um málvillur reynir maður að taka til sín. En stundum fer það inn um annað og út um hitt. Hann skrifar svo mikið um mig að það er ógjörningur að komast yfir það allt. Ég bar það einu sinni undir Dr. Gunna hvort að það væri ekki gott samansafn í bók og hann tók undir það.“
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Fleiri fréttir Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira