Á að hafa kysst þroskaskerta konu á munninn og sagst elska hana Hjörtur Hjartarson skrifar 2. maí 2013 12:14 Mynd tengist frétt ekki beint Mynd/GETTY
Bílstjórinn sem kærður var fyrir að nauðga fatlaðri konu á meðan hann starfaði fyrir ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi er grunaður um að hafa ítrekað kynferðislega áreitt þroskaskerta konu á meðan hann vann fyrir Mosfellsbæ. Kópavogur hyggst endurskoða verkferla í gerð þjónustusamninga við verktaka, segir upplýsingafulltrúi bæjarins. Bílstjóranum var sagt upp störfum um miðjan mars eftir að hann var kærður fyrir að nauðga fatlaðri konu á fertugsaldri. Hann vann hjá verktakafyrirtækinu Smartbílar ehf. sem sér um ferðaþjónustu fatlaðra fyrir bæði Kópavog og Mosfellsbæ. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að maðurinn sé einnig grunaður um annað kynferðisbrot. Hann á að hafa, um nokkurra vikna skeið, ítrekað kysst þroskaskerta konu á munninn, haldið utan um hana og sagst elska hana. Bílstjórinn hafi gefið konunni kókflöskur gegn því að hún segði ekki frá. Hún tilkynnti hinsvegar áreitnina á vinnustað sínum og í kjölfarið fór yfirmaður hennar áfram með málið. Það hefur þó ekki verið kært til lögreglu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var maðurinn að störfum fyrir ferðaþjónustu fatlaðra í Mosfellsbæ þegar kynferðislega áreitnin átti sér stað. Það brot mun hafa átt sér stað áður en bílstjórinn var kærður fyrir nauðgun en þá var hann að vinna fyrir Kópavogsbæ á vegum Smartbíla. Arna Schram, upplýsingfulltrúi Kópavogsbæjar segir að í kjölfar þessara frétta muni bæjarfélagið endurskoða alla verkferla er varða ferðaþjónustu fatlaðra. „Við höfum þegar boðað Gunnar Torfason, framkvæmdastjóra Smartbíla, á fund með velferðarsviði Kópavogs. Þar förum við yfir málsatvik og verkferla. Kópavogsbær gerir miklar kröfur til þeirra sem sinna slíkri þjónustu. Þær kröfur eru gerðar að þeir sem starfi hjá fyrirtæki, sem vinni fyrir bæinn, leggi fram hreint sakavottorð,“ segir Arna. Ekki náðist í Gunnar Torfason, framkvæmdarstjóra Smartbíla í dag. Aldís Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Mosfellsbæjar staðfesti við fréttastofu í morgun að seinna brot bílstjórans hafi verið gegn íbúa bæjarfélagsins. Hún sagði jafnframt að bæjaryfirvöld hafi ekki haft vitneskju um meint brot fyrr fréttamaður hafði samband við skrifstofu Mosfellsbæjar í morgun. Eftirgrennslan hafi hinsvegar leitt í ljós að ekkert formlegt erindi um málið hafði borist Mosfellsbæ.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira