Sigmundur og Bjarni funda hjá pabba Bjarna 6. maí 2013 18:15
Góður gangur er í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks en formenn flokkanna funduðu í dag við Þingvallavatn. Mikil leynd hefur hvílt yfir fundarstað þeirra Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar síðustu daga en hér hafa þeir verið, í sumarbústað í eigu Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna, og fjölskyldu hans. Þeir funduðu einnig í þessum sama bústað í gær. Með flokksformönnunum eru aðstoðarmenn þeirra, þau Svanhildur Hólm Valsdóttir og Jóhannes Þór Skúlason. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hafa ekki aðrir komið að stjórnarmyndunarviðræðunum. „Þú sérð það að ég er bara hérna fyrir norðan,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, þegar fréttastofa náði tali af honum. Þeir Bjarni og Sigmundur Davíð voru ófánlegir til þess að veita fréttastofu viðtal en Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs sagði formennina vera að fara yfir ýmis mál og sagði tímaramma stjórnarmyndunarumræðanna „fljótandi“. Þá á eftir að koma í ljós hvort stjórnarmyndunarviðræður þeirra Sigmundar Davíðs og Bjarna við Þingvallavatn eigi eftir að hafa áhrif á það hvaða nafn væntanlegri stjórn verði gefið, en dæmi eru um að ríkisstjórnir séu nefndar eftir þeim stöðum þar sem stjórnarmyndunarviðræðurnar fóru fram. Eitt frægasta dæmið er að sjálfsögðu Viðeyjarstjórn Davíðs Oddssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar. Ríkisstjórn Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar var mynduð á Þingvöllum og hún var stundum kölluð Þingvallastjórnin þótt Hrunstjórnin hafi reyndar síðar fest sig betur í sessi. Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Joð tilkynntu um stjórnarsamstarf sitt í Norræna húsinu. En það skilaði sér reyndar aldrei í vinsælu viðurnefni fyrir þá stjórn. Sigmundur Davíð og Bjarni hafa nú fundað í leyni við Þingvallavatn, nánar tiltekið í landi Ölfusvatns. Spurningin er hvort það muni hafa áhrif á nafn þeirrar stjórnar sem þeir reyna nú að mynda, eða hvort fræg verslunarferð þeirra í Krónuna í gær muni gera það verkum að stjórnin verði aldrei kölluð neitt annað en Krónustjórnin.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira