Ágætis gangur í stjórnarmyndunarviðræðum 7. maí 2013 20:05
Ágætis gangur er í stjórnarmyndunarviðræðum og samhljómur milli manna um hvaða leiðir skuli fara í mörgum af stærstu málum komandi kjörtímabils. Skuldamál heimilanna hafa þó enn ekki verið rædd og útdeiling ráðherrastóla bíður líka betri tíma. Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Framsóknarflokki og Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokki funduðu í gær og í fyrradag í sumarbústað við Þingvallavatn. Þar sátu þeir ásamt aðstoðarmönnum sínum fram á kvöld áður en haldið var í bæinn að nýju. Í dag var ákveðið að sleppa sveitasælunni og funda í Alþingishúsinu. Reiknað er með að þeir fundi í höfuðborginni næstu daga áður en þeir halda á ný í kyrrðina út á landi. Fundurinn í dag hófst á hádegi og stóð fram eftir degi. „Við höfum farið vítt og breytt yfir málin og já verið ágætis samhljómur, en þetta eru stór viðfangsefni og krefjast í sumum tilvikum tiltölulega flókinna úrræða,“ sagði Sigmundur Davíð í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Í það minnsta vilja menn hafa á hreinu hvernig þeir vilja leysa málin áður en farið er af stað.“ Skuldamál heimilanna, stóra kosningamálið, hvar eruð þið staddir þar? „Við höfum verið að viða að okkur gögnum og tiltölulega lítið rætt það síðustu daga. En það fer að koma að því núna.“ Bjarni Benediktsson segir skuldir heimilanna vera mál sem í raun og veru sameini flokkana tvo. „Þetta var eitt af þremur aðaláherslum okkar fyrir kosningarnar. Þess vegna hef ég alltaf sagt að ég hefði ekki stórar áhyggjur af því að flokkarnir gætu ekki náð saman þar um skynsama lausn.“ Niðurröðun ráðherrastóla bíður að sögn Bjarna betri tíma, fyrst þurfi að ná saman um málefnin. „Við höfum mjög stuttlega rætt það hvort að þörf væri á að gera breytingar inni í stjórnarráðinu, en við höfum ekki komist á leiðarenda með þá umræðu. Við höfum alls ekki rætt hvernig skipta eigi verkefnum milli flokka. Ég er hinsvegar búinn að tala um það í talsvert langan tíma að koma aftur á fót sérstökum heilbrigðisráðherra, hvort sem skipta eigi ráðuneytinu upp eða vera með fleiri en einn ráðherra inni í ráðuneytinu. Það er breyting sem ég mun leggja mikla áherslu á.“ Hvað með forsætisráðherrastólinn? „Við höfum ekki rætt það á nokkurn hátt enn sem komið er, en forsætisráðherrastóll og öll önnur ráðuneyti eru liður af því sem menn þurfa að ná saman í viðræðum sem þessum.“ Bjarni vill ekki spá fyrir um hvenær viðræðum lýkur. „Ég sé ekkert í þessu sem gerir það að verkum að þetta ætti að taka lengri tíma en vanalega að ljúka viðræðum. Strax eftir helgi ætti að vera orðið ljóst hvort menn eru að ná saman eða ekki.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira