Mengunarslys við Bláfjöll - vatnsból í hættu 8. maí 2013 14:57 Olían helltist niður skammt frá skálanum.
Um 600 lítrar af olíu helltust niður þegar þyrla hugðist flytja ker fullt af olíu af bílastæði við Bláfjallaskála upp að Þríhnúkagíg nú fyrir stundu. Samkvæmt gæðastjóra Orkuveitunnar, Kristjönu Kjartansdóttur, sem fylgdist með aðgerðunum, losnaði festing þegar þyrlan var tekin á loft og féll kerið í heild sinni niður á bílastæðið með þeim afleiðingum að það brotnaði og olían helltist niður. „Hefði þyrlan flogið fimm metrum lengra hefði öll olían farið ofan í jörðina,“ útskýrir Kristjana en um er að ræða vatnsverndarsvæði, sem er ástæðan fyrri veru Orkuveitunnar á staðnum, en undir staðnum er grunnvatnsstraumur sem liggur niður í Vatnsendakrika í vatnsból sem og í Kaldársel. Fyrir þá sem ekki vita eru bæði svæðin vatnstökusvæði fyrir Reykjavík og Hafnarfjörð. „Það er ómögulegt að fullyrða hvað gerist nú, en það er mögulegt að það þurfi að hreinsa vatnsbólin“ segir Kristjana en ef olían fer í hraunið mun hún líklega blandast straumnum og enda í vatnsbólunum. Orkuveitan er afar ósátt við að þarna sé verið að sýsla með hættuleg efni á viðkvæmu landsvæði, en þess má geta að svæðið er á vegum Kópavogsbæjar og að sögn Kristjönu veitti heilbrigðiseftirlitið þar í bæ fyrirtæki leyfi til þess að flytja olíuna upp að Þríhnúkagíg. „Við höfum haft miklar áhyggjur af þessu enda fylgi þessu of mikil áhætta að okkar mati,“ segir Kristjana Olíuna átti að nota í ljósalampa sem eru notaðir til þess að lýsa hellinn upp. Þessa stundina eru slökkviliðsmenn á vettvangi að hreinsa olíuna upp.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira