Sport

"Gengur betur næst"

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ásgeir í Suður-Kóreu.
Ásgeir í Suður-Kóreu. Mynd/Aðsend
Ásgeir Sigurgeirsson hefur lokið keppni á heimsbikarmóti Alþjóða skotsambandsins í Suður-Kóreu.

Ásgeir keppti bæði í frjálsri skammbyssu aðfaranótt fimmtudags og með loftskammbyssu aðfaranótt sunnudags. Ásgeir hafnaði í 14. sæti í fyrri greininni með 552 stig sem er nálægt hans besta.

Ásgeir hafnaði hins vegar í 19. sæti í síðari greininni með 575 stig (22 innri tíur). Ásgeir virkaði ekki alveg sáttur í stöðufærslu á Facebook-síðu kappans.

„Gengur betur næst. Nú er það bara laaangt ferðalag heim á klakann," skrifaði ólympíufarinn frá því í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×