50 strandaglópar hjá Strætó 6. mars 2013 13:57 Sveinn Ingi Sigurjónsson tók þessa mynd úr turninum á Höfðatorgi. Vísir þakkar honum kærlega fyrir frábæra mynd af óveðrinu. „
Andrúmsloftið er þokkalegt," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjór Strætó, en um fimmtíu farþegar sitja fastir í höfuðstöðvum Strætó í Hesthálsi, skammt frá Ártúnsbrekkunni. Um er að ræða farþega sem tóku strætó snemma í morgun, en vegna aðstæðna var ákveðið að öruggast væri að fara með þá upp í Hestháls í stað þess að halda áfram austur. Farþegarnir bíða nú í góðu yfirlæti eftir því að veðrinu sloti. „Það er matsalur hérna og allir fengu að borða í hádeginu," segir Reynir. Verið er að endurskoða hvort hægt sé að hefja áætlunarferðir á ný, og segir Reynir að það sé gert í samráði við almannavarnir og lögreglu. „Annars eru hér tveir jeppadellukarlar sem hafa þegar skutlað einhverjum upp í Grafarvog," segir Reynir en menn á vel búnum jeppum, eða ofurtrukkum eins og Reynir lýsir þeim sjálfur, hafa boðið srandaglópum far. Fjöldinn allur af bílum eru fastir skammt frá, á Vesturlandsveginum. Ártúnsbrekkan er alveg veðurteppt. Lögreglan kemur skilaboðum áleiðis í gegnum Facebook-síðu sína en þar sagði meðal annars fyrr í dag að ef foreldrar eru búnir að bíða lengi, og eru með hungruð börn í bílnum, eru þeir hvattir til þess að hringja eftir hjálp í 112.
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Sjá meira