Innlent

Upplýsist í kvöld hvort Reykjavík heldur íþróttaleika samkynhneigðra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Gnarr er í Antwerpen núna.
Jón Gnarr er í Antwerpen núna.
Jón Gnarr borgarstjóri er staddur í Antwerpen en í kvöld verður tilkynnt hvort Reykjavík eða Miami Beach í Flórída verður valinn fyrir sem mótstaður fyrir World Outgames leikana árið 2017. um er að ræða árlega íþróttaleika samkynhneigðra, en hátíðin er haldin fjórða hvert ár og stendur yfir í tíu daga. Næstu leikar fara fram í Antwerpen í júlí í sumar. Sex til ellefu þúsund manns hafa að jafnaði tekið þátt í fyrri leikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×