Kona , sem hrapaði í hlíðum Esjunnar um miðjan dag í gær, var úrskurðuð látin þegar björgunarmenn komust með hana niður á láglendi í gærkvöldi eftir fjölmennan og hættulegan leiðangur.
Afleitt veður hafði skollið þar á auk þess sem snjóflóðahætta var á svæðinu þannig að auka mannskapur var sendur á vettvang til að bregðast við, ef flóð skyldi falla.
Að minnsta kosti tuttugu þjálfaðir fjallamenn tóku þátt í björgunarleiðangrinum sjálfum, og hjálpuðu þeir samferðafólki konunnar til byggða.
