Hjúkrunarfræðingum stendur 30 þúsund króna launahækkun til boða 4. febrúar 2013 18:35
Þær launahækkanir sem hjúkrunarfræðingum býðst með endurnýjun stofnanasamnings leggja sig á um 30 þúsund krónur á mánuði að jafnaði. Fjögurhundruð milljón króna viðbótarframlag frá ríkinu skiptist á um 1.000 stöðugildi hjá Landsspítalanum. Að auki fá hjúkrunarfræðingar afturvirka álagsgreiðslu vegna nóvember, desember og janúar, sem kemur út eins og 90 þúsund króna eingreiðsla um næstu mánaðamót. Það er því ljóst að verið er að bjóða hjúkrunarfræðingum umtalsvert meiri kjarabætur en tóku gildi um síðustu mánaðamót á almennum vinnumarkaði, þegar laun hækkuðu um 3,25 prósent. Hjúkrunarfræðingarnir fá einnig þá hækkun auk fyrrgreindrar hækkunar sem metin er á um 4,2 prósent. Laun þeirra eru að hækka um 7,45 % auk 90 þúsund króna eingreiðslunnar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að mistök hafi verið gerð við síðustu kjarasamninga. Samið hafi verið um samræmda launastefnu óháð getu einstakra atvinnugreina. Nú fái hjúkrunafræðingar verulega launahækkun sem hljóti að vera haft til hliðsjónar við gerð nýrra kjarasamninga næsta haust.Athugasemd 5. febrúar kl. 11:30 Ekki eru allir sem fá 90 þúsund króna eingreiðslu en Björn Zoega, forstjóri Landspítalans, segir að samtals séu þetta um 1350 einstaklingar í 1020 stöðugildum, sem starfi hjá Landspítalanum. Flestir fái 90 þúsund króna greiðslu. Innan við tvö hundruð manns raðist í launaflokka sem fái lægri upphæð. Glærusýning sem starfsmannastjóri Landspítalans kynnti deildarstjórum á fundi fylgir hér að neðan.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Sjá meira