Minnst 10 brot áhugaljósmyndarans til rannsóknar Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. febrúar 2013 16:54 Maðurinn nálgaðist stúlkurnar meðal annars á Facebook. Mynd/ AP.
Minnst tíu mál eru til rannsóknar vegna karlmanns sem grunaður er um að hafa brotið gegn stúlkum, flestum undir lögaldri, með því að fá þær til að afklæðast undir því yfirskini að hann væri ljósmyndari. Brotin áttu sér stað á árunum 2010 og 2011. Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum. Í gæsluvarðhaldskröfu kemur fram að ríkissaksóknari hafi upplýst að ákæra yrði gefin út á hendur manninum, en mál hans eru enn til skoðunar hjá embættinu. Í flestum þessara mála er maðurinn grunaður um að hafa verið í tölvusamskiptum við stúlkur á aldrinum 12 til 15 ára og leitast þar við að fá þær í nektarmyndatökur eða taka þátt í myndatöku, sem sýni kynferðislegar athafnir karls og konu, hvatt þær til að afklæðast fyrir framan vefmyndavél og haft sjálfur uppi kynferðislega tilburði við þær bæði í tali og verki. Þá kemur líka fram að önnur ætluð kynferðisbrot kærða frá þessum árum séu til rannsóknar. Eftir að mál þessi komu til kasta ríkissaksóknara bárust lögreglu fjórar kærur út af málum þar sem rökstuddur grunur er um að kærði hafi sett sig í samband við stúlkur á aldrinum 13 til 16 ára til að fá þær í nektarmyndatöku gegn greiðslu. Til viðbótar við þessi mál hafa jafnframt borist tvær kærur þar sem kærði er sakaður um kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum á árunum 2008 eða 2009, auk þess sem boðað hefur verið að fleiri kærur séu í farvatninu. Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar mun maðurinn sæta gæsluvarðhaldi til 1. mars.
Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira