Gunnar og Eiríkur Örn fengu bókmenntaverðlaun 6. febrúar 2013 17:48
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin 2012 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut í flokki fagurbókmennta Eiríkur Örn Norðdahl fyrir skáldsöguna Illsku, gefna út af Máli og menningu, og í flokki fræðirita og bóka almenns efnis Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur fyrir bókina Pater Jón Sveinsson - Nonni sem Opna gefur út. Þetta er í tuttugusta og fjórða skiptið sem verðlaunin eru afhent en fyrst var tilnefnt til þeirra árið 1989. Forseti Íslands setti samkomuna en því næst flutti Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, stutta tölu og kynnti tilnefnda höfunda. Forseti Íslands kynnti niðurstöður dómnefndar og afhenti verðlaunin. Verðlaunahöfundar ávörpuðu gesti. Þriggja manna lokadómnefnd, skipuð þeim Viðari Eggertssyni, leikhússtjóra, Hrefnu Haraldsdóttur bókmenntafræðingi og Dr. Stefaníu Óskarsdóttur, stjórnmálafræðingi, sem var formaður, valdi verkin úr hópi tíu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna 1. desember síðastliðinn, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna í hvorum flokki. Auk þess er verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens – opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans. Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fagurbókmennta: Auður Ava Ólafsdóttir: Undantekningin Útgefandi: Bjartur Eiríkur Örn Norðdahl: Illska Útgefandi: Mál og menning Gyrðir Elíasson: Suðurglugginn Útgefandi: Uppheimar Kristín Ómarsdóttir: Milla Útgefandi: JPV útgáfa Sigurjón Magnússon: Endimörk heimsins Útgefandi: Ormstunga Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis: Einar Már Jónsson: Örlagaborgin. Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar. Fyrri hluti Útgefandi: Ormstunga Gunnar F. Guðmundsson: Pater Jón Sveinsson – Nonni Útgefandi: Opna Gunnar Þór Bjarnason: Upp með fánann. Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga Útgefandi: Mál og menning Jón Ólafsson: Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu Útgefandi: JPV útgáfa Steinunn Kristjánsdóttir: Sagan af klaustrinu á Skriðu Útgefandi: Sögufélag
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Sjá meira