Innlent

Pólverjar á Ísafirði borða bollur með vodka

Pólverjar, búsettir á Ísafirði tóku forskot á sæluna og héldu upp á bolludaginn í gær, samkvæmt pólskri hefð.

Bakaðar voru sérsatkar bollur í Gamla bakaríinu, samkvæmt pólskri leyniuppskrift og er fátt vitað um hana nema hvað vodka er notað í deigið og sítrónubragð mun vera af bollunum. Þær seldust vel enda búa margir Pólverjar á Ísafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×