Páll mætti ekki í þingfestinguna 30. janúar 2013 11:11 Hér má sjá hvar um heiminn Páll er grunaður um að hafa notað kreditkort íhaldshóps Norðurlandaráðs.
Páll Heimisson, sem hefur verið ákærður fyrir stórfelld umboðssvik, mætti ekki við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann er grunaður um að hafa notað kreditkort íhaldshóps Norðurlandaráðs meðal annars í dýrum fataverslunum , skartgripabúðum og á veitingastöðum um allan heim. Það var heldur lítið sem kom fram í dómsal í morgun annað en von er á Páli til landsins í byrjun mars, en hann er með lögheimili í Rúmeníu þar sem hann stundar nám. Fyrirtaka í málinu verður 5. mars næstkomandi. Sérstakur saksóknari gaf út ákæru á hendur honum þann 18. desember síðastliðinn. Fréttablaðið fjallaði um hana um miðjan mánuðinn en þar segir meðal annars að Páll hafi notað kortið í sextán löndum frá janúar 2009 til mars 2011. Hann ferðaðist um þrettán Evrópulönd á tímabilinu en einnig fór hann til Líbanon, New York í Bandaríkjunum og Peking, höfuðborgar Kína. Upphæðin sem hann er talinn hafa svikið út eru um nítján milljónir króna, þar af voru tólf milljónir teknar út í bönkum og hraðbönkum. Í ákærunni segir að árið 2011 virðist hann hafa hægt á sér, því þá sé notkunin á kortinu ekki nema tæpar 233 þúsund krónur á þriggja mánaða tímabili. Það ár sé ekki um neinar óheimilar úttektir á reiðufé að ræða. Páll er þrítugur, fæddur árið 1982. Hann hafði verið virkur í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins og var alþjóðafulltrúi flokksins þegar hann tók við sem ritari íhaldshópsins.
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira