Táraðist yfir viðbrögðum fólks Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 3. janúar 2013 20:47
Fjórtán ára stúlka sem berst gegn óraunhæfum staðalímyndum í samfélaginu segist hafa tárast yfir skilaboðum frá fólki vegna skrifa hennar meðal annars stúlkum með átröskun. Þá hvetur hún fólk til þess að vera ánægt með líkama sinn og brosa framan í sjálfa sig í speglinum. Hugleiðing Helgu Maríu um útlitskröfur samfélagsins birtist á vísi punktur is í morgun en pistilinn skrifaði hún í fyrrakvöld eftir að hafa fengið sigm fullsadda af óraunhæfum staðalímyndum. „Ég stóð fyrir framan spegilinn minn og horfði á mig og var bara: Nú þarftu að fara í átak Helga, farðu að bæta þig! Það gengur ekki að vera svona! En svo hugsaði ég: Af hverju gengur ekki að vera svona? Má ég ekki vera svona? Er það ekki í lagi að vera svona? Og ég bara ákvað að sætta mig við sjálfa mig og koma þessu öllu út," segir Helga. Hún segir til dæmis miklar kröfur um það að allir þurfi að fara í átak í janúar vera yfirþyrmandi og þó svo að enginn hafi sagt henni að fara í átak líði henni eins og hún sé stöðugt undir pressu að líta út eins og módel í tískublöðum. „Maður fer í sund til dæmis, þá passar maður að halda maganum inni og svona," segir hún. Hugleiðingar Helgu hafa svo sannarlega vakið athygli en yfir þrjú þúsund manns höfðu deilt fréttinni á facebook síðdegis í dag. „Ég bjóst aldrei við svona brjálæðislega miklu, bara hellingur af allskyns skilaboðum. Ég táraðist mjög oft yfir svo fallegum ræðum sem fólk var að senda mér," segir hún og vonast til að þessi litla hugleiðing muni hjálpa einhverjum. „Það eru reyndar rosalega margar stelpur búnar að koma til mín og segja: Ég er að berjast við allskyns átraskanir og þetta er búið að styrkja mig roslega og hjálpa mér að halda áfram að berjast við það sem ég er að glíma við," segir Helga. Þá hefur Helga hengt upp setningar og myndir á vegg í herberginu sínu til að hvetja sig áfram en fyrst og fremst séu skilaboðin hennar til allra „Að halda heilbrigðum lífstíl en vera bara ánægður eins og þú ert. Ef þú vilt breyta einhverju, endilega gerðu það en vertu samt ánægður og brostu við sjálfa þig þegar þú lítur í spegil," segir hún að lokum.
Tengdar fréttir Komin með alveg upp í kok af þessu samfélagi "Ókei shit ég get þetta ekki lengur. Ég er komin með alveg mikið meira en upp í kok af þessu samfélagi, þessum heimi sem við lifum í og þessum óraunhæfu staðalímyndum sem við eigum að líkjast! Ég er komin með nóg að því að líða illa yfir líkama mínum afþví að ég er ekki með grönn læri, af því ég er ekki með grannt andlit og af því ég er ekki með einhvern fullkominn sléttan maga! Af hverju á mér að líða illa yfir því? Af hverju fynnst mér stanslaust eins og ég þurfi að svelta mig til að líða vel? Af hverju má ég ekki vera flott og fín nákvæmlega eins og ég er? Ég er alls ekki að stuðla til þess að lifa óheilbrigðum lífsstíl eða þá að sé í lagi að borða óhollt eins og svín og lifa bara fyrir framan sjónvarpið. Auðvitað borða ég að mestu hollan mat og hreyfi mig reglulega en því miður er ég bara ekki ein af þeim með fullkominn maga. En enn og aftur, hver ákveður hvað er fullkominn magi? Afhverju getur minn magi ekki alveg eins verið fullkominn? Og þó enginn sé að segja mér að ég þurfi að grennast eða taka mig á eða eitthvað, þá líður mér eins og ég sé undir stöðugri pressu, að ég þurfi að vera með flatan maga. Eins og mér á ekki að þurfa að líða illa yfir því að fara í sund með vinum mínum! Ég ákvað því að mín áramótaheit skyldu verða að vera ánægð og stolt af líkama mínum hvernig sem hann er þó eg ætli að demba mér líka í gott átak. Þess vegna ætla ég að setja þessa mynd af mínum maga hérna inná og auk þess vera ómáluð og með ekkert filter og bara vera stolt af því! Haha varð bara að koma þessu út. Takk fyrir að lesa ef þú nenntir því og ég hvet þig til að vera ánægð/ur með sjálfan þig sama hvernig þú ert! :) ást og friður," skrifar Helga María Helgadóttir 14 ára á Facebooksíðuna sína. Lífið hafði samband við Helgu og bað hana um leyfi til að birta þessa frábæru hugleiðingu og forvitnaðist í leiðinni um viðbrögð vina hennar við pistlinum. "Þau hafa verið alveg æðisleg. Ég hef ekki fengið neitt annað en svo flott skilaboð hérna á Facebook og ég hefði aldrei trúað því hvað fólk er yndælt. Ég hef séð reyndar eitt og eitt skítakomment en bjóst alveg við því og læt það ekkert á mig hafa," segir Helga. 3. janúar 2013 08:45 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir „Tárin streymdu niður vangann á mér“ Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Sjá meira
Komin með alveg upp í kok af þessu samfélagi "Ókei shit ég get þetta ekki lengur. Ég er komin með alveg mikið meira en upp í kok af þessu samfélagi, þessum heimi sem við lifum í og þessum óraunhæfu staðalímyndum sem við eigum að líkjast! Ég er komin með nóg að því að líða illa yfir líkama mínum afþví að ég er ekki með grönn læri, af því ég er ekki með grannt andlit og af því ég er ekki með einhvern fullkominn sléttan maga! Af hverju á mér að líða illa yfir því? Af hverju fynnst mér stanslaust eins og ég þurfi að svelta mig til að líða vel? Af hverju má ég ekki vera flott og fín nákvæmlega eins og ég er? Ég er alls ekki að stuðla til þess að lifa óheilbrigðum lífsstíl eða þá að sé í lagi að borða óhollt eins og svín og lifa bara fyrir framan sjónvarpið. Auðvitað borða ég að mestu hollan mat og hreyfi mig reglulega en því miður er ég bara ekki ein af þeim með fullkominn maga. En enn og aftur, hver ákveður hvað er fullkominn magi? Afhverju getur minn magi ekki alveg eins verið fullkominn? Og þó enginn sé að segja mér að ég þurfi að grennast eða taka mig á eða eitthvað, þá líður mér eins og ég sé undir stöðugri pressu, að ég þurfi að vera með flatan maga. Eins og mér á ekki að þurfa að líða illa yfir því að fara í sund með vinum mínum! Ég ákvað því að mín áramótaheit skyldu verða að vera ánægð og stolt af líkama mínum hvernig sem hann er þó eg ætli að demba mér líka í gott átak. Þess vegna ætla ég að setja þessa mynd af mínum maga hérna inná og auk þess vera ómáluð og með ekkert filter og bara vera stolt af því! Haha varð bara að koma þessu út. Takk fyrir að lesa ef þú nenntir því og ég hvet þig til að vera ánægð/ur með sjálfan þig sama hvernig þú ert! :) ást og friður," skrifar Helga María Helgadóttir 14 ára á Facebooksíðuna sína. Lífið hafði samband við Helgu og bað hana um leyfi til að birta þessa frábæru hugleiðingu og forvitnaðist í leiðinni um viðbrögð vina hennar við pistlinum. "Þau hafa verið alveg æðisleg. Ég hef ekki fengið neitt annað en svo flott skilaboð hérna á Facebook og ég hefði aldrei trúað því hvað fólk er yndælt. Ég hef séð reyndar eitt og eitt skítakomment en bjóst alveg við því og læt það ekkert á mig hafa," segir Helga. 3. janúar 2013 08:45