Karl Vignir gisti fangageymslur í nótt Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 9. janúar 2013 12:03 Karl Vignir Þorsteinsson hefur verið í skýrslutökum að undanförnu. Mynd/ RÚV.
Það ræðst síðar í dag hvort lögregla krefst gæsluvarðhalds yfir barnaníðingnum Karli Vigni Þorsteinssyni. Skýrslutöku yfir honum er nú lokið í bili að sögn yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Karl Vignir gisti fangageymslur lögreglunnar í nótt og er hann nú enn hjá lögreglu. Karl Vignir játaði að hafa misnotað allt að fimmtíu börn í gegnum tíðina á upptökum sem Kastljós sýndi í fyrrakvöld. Hann var í kjölfarið kallaður til skýrslutöku hjá lögreglu og beðinn um að gefa nánari upplýsingar um brotin og brotaþola. „Karl Vignir hefur verið í skýrslutöku í gær og var í skýrslutöku fram á kvöld og aftur í morgun. Skýrslutökum er lokið í bili og það er verið að íhuga næstu skref hér hjá okkur. Og hann dvelur hjá ykkur núna? Já, hann er hjá okkur. Verður hann það áfram? Já, hann verður áfram þar til ákvörðun verður tekin hvort að lögð verður fram gæsluvarðhaldskrafa sem er þá síðar í dag. Ég get svo sem ekki mikið sagt meira um það," segir segir Björgvin Björgvinsson yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu og bætir við að ekki sé hægt að gefa nánari upplýsingar um skýrslutökuna yfir Karli Vigni að svo stöddu. Ítarlega var fjallað um Karl Vigni í DV árið 2007 eftir að hann játaði kynferðisbrot gegn þremur drengjum á vistheimilinu að Kumbaravogi. Fjöldi greina var birtur, bæði með viðtölum við fórnarlömb og aðstandendur þeirra, en þar sem brotin voru fyrnd gat lögregla ekkert aðhafst. Á upptökunum í Kastljósi játaði hann að hafa brotið gegn börnum á síðustu árum, eftir 2007, en það ár var lögunum breytt þannig að alvarlegustu kynferðisbrotin gegn börnum fyrnast ekki. Síminn stoppaði varla hjá Stígamótum í gærdag, í kjölfar umfjöllunar Kastljóss. Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta segir að sama hafi verið upp á teningnum í gærkvöldi og í morgun en einnig lögðu allmargir inn skilaboð á símsvara samtakanna í nótt. Fólk hefur leitað til Stígamóta vegna ofbeldis sem það segir Karl hafa beitt sig en einnig hafa aðrir leitað sér hjálpar vegna ofbeldis sem það hefur verið beitt af öðrum.
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Fleiri fréttir „Tárin streymdu niður vangann á mér“ Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Sjá meira