Húsbrot tengdist handrukkun María Lilja Þrastardóttir skrifar 4. júní 2013 07:00 Mennirnir sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald vegna húsbrots hafa allir komið við sögu lögreglunnar.
Fjórir menn á aldrinum 18 til 23 ára hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 10. júní vegna ráns og frelsissviptingar í Grafarvogi á laugardag. Ráðist var inn á heimili manns á sjötugsaldri, honum ógnað með hnífi og hann bundinn á höndum og fótum. Mennirnir höfðu á brott með sér átta skotvopn og skotfæri af heimili mannsins. Þeir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. Maðurinn sem ráðist var á sagði í samtali við Fréttablaðið líðan sína eftir atvikum góða en að eðlilega væri honum brugðið. „Það dugir lítið annað en að reyna bara að vera harður af sér,“ sagði maðurinn. Vopnin fundust skömmu síðar í húsleit í Hlíðahverfi en vitni gátu gefið greinargóða lýsingu á bíl mannanna. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er talið að málið tengist handrukkun hjá barnabarni fórnarlambsins. Sá ku vera mjög ungur að árum og á jafnframt við félagslegan vanda að etja. Rannsókn lögreglunnar beinist meðal annars að tengslum mannanna við vélhjólaklíkuna Outlaws. Fórnarlamb árásarinnar leitaði til nágranna síns í næstu íbúð, þá bundinn á höndum og fótum. Nágranninn segist einnig í miklu áfalli. „Til þess að losa um fjötrana þurfti ég að nota sax. Þetta var svo kirfilega bundið. Við eigum þessu ekki að venjast hér í þessu góða hverfi,“ sagði nágranninn sem ekki vill láta nafns síns getið.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent Fleiri fréttir Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Sjá meira