Kvarta undan óvissu og samráðsleysi 4. júní 2013 16:11 Helgi Hjörvar gagnrýnir samráðsleysi.
Ekkert liggur fyrir um nefndarskipan eða dagskrá alþingis nú þegar tveir dagar eru til þingsetningar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja þetta óheppilegt og kenna reynsluleysi stjórnarliða um stöðu mála. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, starfandi forseti Alþingis, boðaði þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar til fundar í Alþingishúsinu í morgun. Markmið fundarins var að fara yfir dagskrá þingsetningar á fimmtudag en ekkert liggur hins vegar fyrir hvaða mál verða á dagskrá sumarþingsins og ekki er búið að skipa í þingnefndir. Helgi Hjörvar, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, segir þetta afar óheppilegt. „Óvissa og samráðsleysi við stjórnarandstöðuna er auðvitað óheppileg byrjun á kjörtímabili en stjórnarflokkarnir hafa lýst yfir vilja til að bæta úr og ég treysti því að við fáum að sjá vilja til samráðs og samkomulags hér um þingstörfin hér í verki á fundi formanna flokkanna í framhaldi af þessum fundi," segir Helgi. Undir þetta tekur Róbert Marshall, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar. „Það er svolítill byrjendabragur á þessu og þetta er óheppilegt. Fyrirvarinn er mjög skammur og við þurfum að raða niður í nefndir: Það skiptir miklu máli að koma þinginu vel af stað," segir Róbert. Ragnheiður Ríkharðsdóttir á von á því að málið verði klárað á fundi formanna í kvöld eða á morgun. „Það hefði verið æskilegra að við hefðum getað lokið vinnu við skipan í fastanefndir þingsins og alþjóðanefndirnar fyrr en raun ber vitni en þetta er raunveruleikinn sem við stöndum frammi fyrir og formenn flokkanna ætla að hittast í kvöld eða fyrramálið til þess að fara í gegnum það sem að þeim snýr og eftir það ættu þingflokksformenn ásamt formönnum flokka að geta hafist handa við að skipta í nefndir og það er í sjálfu sér ekki flókið," segir Ragnheiður.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira