„Eini svona gítarinn í heiminum“ Gunnar Leó Pálsson skrifar 17. desember 2013 10:30 Bubbi Morthens er hæstánægður með nýja gítarinn. fréttablaðið/gva „
Þetta er eini svona gítarinn í heiminum,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens, sem fékk á dögunum í hendurnar gítar frá einum virtasta gítarframleiðanda í heimi, Martin & co en hann er sérsmíðaður fyrir Bubba. Um er að ræða einn fegursta kassagítar sem til er, þá er hljómur hljóðfærisins eftir útlitinu. Gítarinn er vel skreyttur og hvert einasta smáatriði úthugsað. „Hver hluti gítarsins er sérvalinn, viðartegundir og öll listaverkin eru öll úthugsuð. Það tók um eitt ár að smíða gítarinn,“ útskýrir Bubbi.Á gítarhálsinum er nafn eigandans úr ekta perlumóðuskel.fréttablaðið/gva„Hann er úr nokkrum viðartegundum líkt og rosewood, snakewood sem er í öllum bindingum. Skreytingarnar eru úr ekta perlumóðuskel og hálsinn úr ebony-við. Til að geta fengið nógu langan ebony-við í hálsinn þarf að nota allavega hundrað ára gamalt tré,“ útskýrir Andrés Helgason eigandi verslunarinnar Tónastöðvarinnar, sem er umboðsaðil Martin & co á Íslandi. Á hálsi gítarsins eru tvö falleg listaverk, annars vegar nafn Bubba og lax, sem er úr perlumóðuskel. „Laxinn er ljósmynd úr breskri veiðibók en því miður veiddi ég hann ekki sjálfur. Ég spila mína fyrstu tónleika með hann núna á fimmtudaginn í Bíóhöllinni á Akranesi, það verður ákaflega gaman,“ bætir Bubbi við. Framundan eru tónleikar í Hofi á Akureyri á laugardag og svo verða árlegu þorláksmessutónleikar Bubba í Eldborgarsalnum í Hörpu á Þorláksmessukvöld.
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira