Innlent

Dóttir Páls: „Mikið lifandi ósköp sem ég er fegin“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hlín Pálsdóttir styður ákvörðun föður síns að láta af störfum sem útvarpsstjóri.
Hlín Pálsdóttir styður ákvörðun föður síns að láta af störfum sem útvarpsstjóri. mynd/samsett
Hlín Pálsdóttir, dóttir fyrrum útvarpsstjóra, styður ákvörðun föður síns að hætta sem útvarpsstjóri en hún tjáir sig um málið á samskiptamiðlinum Facebook.

Eins og fram hefur komið hætti Páll Magnússon sem útvarpsstjóri í dag eftir sameiginlega ákvörðun hans og stjórnar RÚV um starfslok.

„Mikið lifandi ósköp sem ég er fegin! Þvílíkt og annað eins hark og djöfulskapur sem þetta hefur verið og svo ég byrji nú ekki á skoðunum mínum á sumu fólki og því sem það lætur útúr sér,“ segir Hlín á samskiptamiðlinum.

Hlín vill ekki eyða meira púðri í fólk sem öskrar út í vindinn, en á sama tíma með enga þekkingu og því síður rökhugsun.

„Elsku pabbi ég óska þér til hamingju og get ekki beðið eftir nýjum kafla þar sem ég þarf ekki að horfa uppá þig eða öllu heldur í gegnum þig harkast í þessu svartholi og illa vanmetna starfi,ósofin vegna álags og með hrægamma illskunnar og heimskunnar kastandi sora yfir þig alla daga með litla sem enga innistæðu fyrir því.“

Edda Sif Pálsdóttir, dóttir Páls og systir Hlínar, starfaði lengi vel sem íþróttafréttamaður á RÚV og hefur umfjöllun í hennar garð oft á tíðum verið á þá leið að hún hafi fengið starfið af þeirri ástæðu að hún hafi verið dóttir útvarpsstjórans.

„Ég er líka dóttir pabba míns og veit alveg hvernig það er en Edda hefur alltaf þurft að vinna fyrir öllu sem hún hefur tekið sér fyrir hendur og gott betur en það. Þessi umfjöllun í garð hennar hefur verið ótrúleg og allt þetta mál hefur lagst þungt á alla fjölskylduna. Ég er ótrúlega stolt af föður mínum og tel að þetta sé rétt ákvörðun,“ segir Hlín í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×