Lofa stærra Barnahúsi Kristjana Arnarsdóttir skrifar 30. ágúst 2013 21:11 Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðisráðherra, voru viðstödd fundinn í dag. Þau segja samstöðu ríkja innan ríkisstjórnarinnar um stækkun á húsnæði Barnahúss. Fréttablaðið/arnþór „
Við teljum rétt að bregðast strax við því sem fram kemur í þessari skýrslu,“ sagði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðisráðherra, á fundi sem fram fór í húsakynnum UNICEF í dag en þar funduðu fjórir ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar með sérfræðihópi barna hjá UNICEF. Sérfræðihópurinn er skipaður ungmennum sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi og fékk hópurinn það verkefni að búa til skýrslu þar sem lagðar voru fram skýrar tillögur til úrbóta í málefnum sem tengjast kynferðisbrotum gegn börnum. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í dag eru biðlistar í Barnahúsi lengri en nokkru sinni fyrr. Eygló sagði á fundinum að samstaða ríkti innan ríkistjórnarinnar um að auglýsa eftir stærra húsnæði fyrir Barnahús og að verið sé að leggja lokahönd á auglýsingu þess efnis. Hún sagði jafnframt að með stækkun húsnæðisins yrði auðveldara að taka á þeim biðlistum sem þegar eru til staðar. Eygló segir það mikilvægt að þessi málefni fái góðan framgang í kerfinu. Hún segir að sérfræðihópurinn hafi bent á að margt mætti betur fara við meðhöndlun mála sem þessara. Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, tók það fram á fundinum að sérfræðihópurinn hefði bent á að fræðslan í skólakerfinu þyrfti að vera meiri og öflugri. Allir ráðherrarnir sammæltust um það að fundurinn í dag hefði verið einn sá átakanlegasti sem þau hefðu setið. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagðist fagna því að brotaþolar stígi æ oftar fram til að tala um reynslu sína og benti á að á síðustu árum hefði margt breyst til hins betra.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira