Hagsmunum fatlaðra betur borgið innan ESB 7. febrúar 2013 20:58
Ný skýrsla sem Öryrkjubandalag Íslands lét vinna kemst að þeirri niðurstöðu að hagsmunum fatlaðs fólks á Íslands sé betur borgið með aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands vann að skýrslunni sem ber heitið „Er hagsmunum fatlaðs fólks á Íslandi betur borgið með eða án aðildar að Evrópusambandinu?" Í niðurstöðum hennar segir að afar mikilvægt sé að taka fram að aðild að Evrópusambandinu skapi tækifæri til jákvæðrar þróunar en tryggi hana þó ekki. „Til að aðild að ESB skili jákvæðum áhrifum þurfa stjórnvöld á öllum stigum, stjórnsýsla, fagfólk og ekki síst hagsmunasamtök fatlaðs fólks að nýta sér þau tækifæri og möguleika sem faglegt starf, framsækin stefna og lagasetningar ESB veita. Í framkvæmd vegur það þyngst hvort stjórnvöld og hagsmunasamtök á Íslandi nota sér þau tækifæri sem aðild að ESB býður," eins og segir í skýrslunni. Í skýrslunni er lögð áhersla á að Evrópusambandið sé ákaflega flókið og til að gera umfjöllun aðgengilega hafi ýmislegt varðandi starfsemi, uppbyggingu og stofnanir þess verið einfaldað. Þá er ítrekað að einungis sé tekið tillit til hagsmuna sem varða málefni fatlaðs fólks og ekki tekið mið af neinum öðrum hagsmunum sem snerti aðild Íslands að ESB.Nánari upplýsingar um skýrsluna má sjá á vef Blindrafélagsins þar sem skýrslan er aðgengileg í heild sinni.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Fleiri fréttir Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Sjá meira