"Sá blóðbununa standa út" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. febrúar 2013 20:04 Skúli Eggert Sigurz í viðtalinu í Kastljósi. Mynd/Skjáskot „
Ég lít svona niður og þá stendur bara blóðbunan hérna út. Mér náttúrulega brá alveg rosalega. Ég áttaði mig strax á því að ég hefði verið stunginn en ég fann ekki fyrir því," segir Skúli Eggert Sigurz sem varð fyrir lífshættulegri líkamsárás í mars á síðasta ári. Skúli Eggert var í viðtali í Kastljósi í kvöld og ræddi þar um árásina sem kom honum í opna skjöldu. Maður að nafni Guðgeir Guðmundsson hafði sótt lögmannastofuna Lagastoð í Lágmúla heim vegna skuldar sem stofan innheimti. Úr varð að Skúli Eggert ræddi við Guðgeir á skrifstofu sinni þar sem sá síðarnefndi veitti Skúla lífshættulega áverka. Sigurði var haldið sofandi í öndunarvél í þrjár vikur eftir árásina. Líklegt má telja að verr hefði farið ef ekki hefði verið fyrir snar handtök Guðna Bergssonar, samstarfsmanns, Skúla. Skúli var farinn að búa sig undir brottför úr vinnunni þegar hann kom við í afgreiðslunni. „Um leið og ég sá framan í drenginn hugsaði ég að það væri eitthvað að. Ég sá það á honum. Bara svipurinn í andlitinu. Ég hef oft afgreitt fólk sem á við andleg vandamál að etja og ég sá að það væri eitthvað að. Ég bauð honum inn og fór að ræða þetta mál sem hann kom hingað útaf," segir Skúli og minnti á að upphæðin sem Guðgeir hafði komið til þess að kvarta yfir hefði ekki verið há. Skuld Guðgeirs, sem var í innheimtu hjá lögfræðistofu sem Skúli starfaði hjá, nam um 80 þúsund krónum. „Ég hreinlega felldi niður alla vexti og allan kostnað og sagði við hann að hann gæti bara borgað höfuðstól og útlagðan kostnað og þá væri þetta búið. Hann sagði ekki eitt einasta orð á meðan hann sat í stólnum." Skúli Eggert segist hafa staðið upp úr sæti sínu, rétt Guðgeiri blaðið og sagt honum að stúlkurnar í afgreiðslunni muni ganga frá málinu. „Ég brosi til hans, tek í höndina á honum og hann í mína. Það voru engin læti, hann kippti ansi hraustlega í höndina á mér og ég fann, hafði á tillfinningunni, að hann hefði sett höndina undir handarhrika minn," segir Skúli sem tók þá eftir blóðbununni. „Ég segi við hann höstulega: Hvað gengur þér til drengur? Þá sagðist hann hata lögfræðinga. Ég hreinlega ætlaði ekki að trúa þessu. Mér fannst þetta svo absúrd" sagði Skúli Eggert sem hlaut fimm stungusár þar af fjögur lífshættuleg. „Ég lít svona niður og þá stendur bara blóðbunan hérna út. Mér náttúrulega brá alveg rosalega. Ég áttaði mig strax á því að ég hefði verið stunginn en ég fann ekki fyrir því." Skúli lýsir því hvernig hann hafi hugsað með sér að ef hann gerði ekki neitt yrði hann drepinn. Hann hafi því rykkt í Guðgeir, keyrt hann í hurðina og það hafi kannski bjargað einhverju. Hann hafi þá áttað sig á því hversu mikið blóð hafi verið á gólfinu, hann runnið til og Guðgeir lent ofan á honum á gólfinu. „Í þessum látum öllum, þetta tók kannski tíu sekúndur, er hann búinn að stinga mig fimm sinnum. Ég fann aldrei fyrir einni einustu stungu," segir Skúli. Guðni Bergsson, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og samstarfsmaður Skúla, kom þá inn á skrifstofu Skúla. „Ég sé í gegnum matt glerið og heyri að það er eitthvað slæmt í gangi. Ég held að það séu einhver handalögmál á ferð, einhver óánægður sem hafi veist að Skúla. Sé verið að skiptast á höggum eða einhvers konar átök," segir Guðni sem áttaði sig á því að mun alvarlegi hlutur væri á ferðinni þegar hann opnaði hurðina. „Maður fær ekki mikinn tíma til að hugsa og ég stekk til. Maður reynir að fara þarna á milli og komast að árásarmanninum og ná tökum á honum. Ég næa að grípa utan um hann og keyra hann í gólfið. Er þá að einbeita mér að ná tökum að hendinni, vinstri hendinni með hnfínum, og það tekst fljótlega," segir Guðni sem segist hafa æpt á Guðgeir: „Slepptu hnífnum, slepptu hnífnum!" Hnífurinn losnaði að lokum úr hendi Guðgeirs, fleira starfsfólk bar að garði og þá hafi náðst betra tak á ástandinu. Guðgeir var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og stórhættulega líkamsárás. Guðgeir játaði brot sín frá upphafi, en hann var metinn sakhæfur eftir geðmat.Þátt Kastljóss í kvöld má sjá á heimasíðu Rúv.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira