Innlent

Lögreglan hvetur fólk til að vera heima

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Allt er stopp við Gullinbrúna þar sem þessi mynd er tekin.
Allt er stopp við Gullinbrúna þar sem þessi mynd er tekin. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan bendir fólki á að það er ekkert ferðaveður, skyggni ekkert og allt meira og minna stopp í borginni. Fólk er hvatt til að vera heima við þangað til að veður skánar.

Suðurlandsvegur er lokaður við Olís í Norðlingaholti, verið er að skoða lokanir á Vesturlandsvegi við Þingvallaveg. Lögreglan hvetur fólk til að lesa í bók, hringja í vin, vera heimavið frekar en að leggja af stað núna.

Reikna má með að öll heimaþjónusta, heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta í Reykjavík gæti orðið sein í dag vegna veðurs. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir líka að haft verður samband við fólk ef fella verður niður þjónustu sökum ófærðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×