Animal Planet vildi veiða Lagarfljótsorminn á stöng gar skrifar 31. maí 2013 08:00 Urriðinn í Þingvallavatni leitar í djúpið í lok júlí og var ekki til viðtals um stangveiði. River Monster-gengið skoðaði í staðinn þessa tignarlegu fiska með aðstoð Jóhannesar Sturlaugssonar fiskifræðings. Mynd/Laxfiskar ehf.
Fjallað er um Lagarfljótsorminn og Þingvallaurriðann í lokaþætti hinnar vinsælu þáttaseríu River Monsters á sjónvarpsstöðinni Animal Planet. Jeremy Wade og aðstoðarmenn hans í Rivers Monsters komu til Íslands í júlí í fyrra. Í sama þætti leitar Wade að Loch Ness-skrímslinu í Skotlandi og tekur einnig hús á Norðmönnum. Fyrir austan naut Wade aðstoðar Skúla Björns Gunnarssonar, forstöðumanns Skriðuklausturs, sem segir Wade hafa reynt að veiða Lagarfljótsorminn á stöng. Það hafi ekki tekist. „En hann var greinilega búinn að kynnast ýmsu úr djúpunum,“ segir Skúli. Áhugi á Lagarfljótsorminum snarjókst eftir frægt myndband bóndans Hjartar Kjerúlfs. Þar sjást torkennileg fyrirbæri hreyfast í fljótinu. Myndskeið Hjartar, sem Wade spjallaði einmitt við, var skoðað um fimm milljón sinnum á Youtube. Að sögn Óðins Gunnars Óðinssonar, menningarfulltrúa Fljótsdalshéraðs, komu tvær bandarískar sjónvarpsstöðvar hingað í kjölfarið og fjallað var um Orminn á rússneskri sjónvarpsstöð. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, er ekki undrandi á því að Lagarfljótsormurinn sé ófundinn. „Þetta er sniðug skepna sem hefur vit á að sýna sig ekki nema þegar henni hentar,“ segir Björn, sem aðspurður kveður aðeins suma erlenda ferðamenn vita af hinum dularfulla Ormi. „Kannski hafa menn ekki verið nógu duglegir að vekja athygli á sögunni og það er einmitt það sem verið er að vinna með núna,“ upplýsir Björn. „Það verður lögð áhersla á tilvist Ormsins og ævintýrinu í kring um hann.“ Wade og félagar komu við á urrriðaslóðum í Þingvallavatni. Þar nutu þeir aðstoðar Jóhannesar Sturlaugssonar fiskifræðings, sem kom þeim í samband við urriða af stærri gerðinni, þó að þeir alstærstu hafi ekki fundist, enda þátturinn tekinn upp í júlílok þegar hvað erfiðast er að nálgast urriðana. „Þegar við sigldum á vatninu voru þeir andaktugir yfir tærleika þess. Þeir voru eiginlega algerlega kjaftstopp,“ segir Jóhannes, sem telur sýninguna á Animal Planet óhemju dýrmæta landkynningu.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira