Efnahagslífið verði tekið í gegn Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 9. maí 2013 07:00 Friðrik Már Baldursson
Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Íslandi hittist í þriðja sinn í gær. Á fundi þess voru víðtækar hagvaxtartillögur verkefnisstjórnar samráðsvettvangsins kynntar og þær ræddar af meðlimum vettvangsins. Tillögunum sem kynntar voru í gær er ætlað að stuðla að því að markmið sem samráðsvettvangurinn hefur sett sér, og sjá má hér neðar, verði að veruleika. Tillögurnar eru þó einungis upphafið að vinnu samráðsvettvangsins sem stefnir að því að lokaniðurstöðurnar liggi fyrir í haust. Tillögur verkefnisstjórnarinnar snúa að öllum geirum hagkerfisins: opinbera geiranum, innlendri þjónustu, auðlindageiranum og alþjóðageiranum. Innan opinbera geirans er meðal annars lagt til að ýmsar stofnanir verði sameinaðar og efldar og að fjölþættar umbætur verði gerðar á fyrirkomulagi heilbrigðis- og menntakerfisins. Í innlenda þjónustugeiranum er til dæmis lagt til að umhverfi tolla og neysluskatta verði einfaldað og að hvatt verði til aukinnar samkeppni. Í auðlindageiranum eru lagðar til breytingar sem stuðla eiga að aukinni arðsemi í orkuframleiðslu og sjálfbærri nýtingu ferðamannastaða. Loks eru settar fram tillögur í alþjóðageiranum sem eiga að sporna gegn skorti á hæfu vinnuafli og tryggja aðgengi fyrirtækja að fjármagni. Friðik Már Baldursson, sem stýrt hefur vinnu verkefnisstjórnarinnar, segist vonast til þess að tillögurnar nái fram að ganga, í það minnsta að hluta. „Ég vonast eftir því að við berum gæfu til þess að nýta þann skriðþunga sem fylgir þessari vinnu. Ef að við gerum það þá eigum við eftir að nýta einhver þeirra tækifæra sem þessar tillögur lýsa.“ Þá segir Friðrik að umræður samráðsvettvangsins um tillögurnar hafi verið góðar. „Auðvitað var bent á eitthvað sem fólki finnst vanta og á veikleika en umræðurnar voru málefnalegar og góðar og fram kom stuðningur við þetta ferli.“ Loks segir Friðrik að þótt markmið samráðsvettvangsins séu metnaðarfull sé mögulegt að ná þeim. „Þessar tillögur eiga að geta stuðlað að því að við brúum það bil sem er á milli okkar og hinna Norðurlandaríkjanna þegar kemur að framleiðni. Ef við virkilega viljum getum við breytt því.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira