Enn stefnir í vinnudeilu á Landspítala 3. júní 2013 09:30 Björn Zoëga segir misskilnings gæta hjá kandídötum. „
Kandídatarnir sem eru að útskrifast núna sendu Landspítalanum undirritað skjal þar sem þeir sögðust ekki geta unnið við þær aðstæður sem þar er boðið upp á, hvorki hvað varðar laun né starfsaðstöðu, og óskuðu eftir fundi með yfirmönnum spítalans,“ segir Ómar Sigurvin Gunnarsson, formaður Félags almennra lækna, um tildrög þess að mikill meirihluti kandídatanna hefur ekki ráðið sig til starfa á Landspítalanum eins og hefð hefur verið. Um fimmtíu kandídatar útskrifast í vor og að sögn Ómars hefur venjan verið sú að tveir þriðju þeirra færu til starfa á LSH. Sú er ekki raunin nú. „Það var einhver misskilningur í gangi hjá kandídötunum,“ segir Björn Zoëga, forstjóri LSH, spurður um niðurstöðu fundarins. „Þeir stóðu í þeirri meiningu að spítalinn semdi um launakjör við kandídata.“ Björn bendir á að fyrir það fyrsta sé enginn opinn kjarasamningur, auk þess sem Læknafélag Íslands semji um kjör við fjármálaráðuneytið. Aukinheldur séu kandídatar í allt annarri stöðu en venjulegir starfsmenn spítalans. „Þeir eru að koma í svokallað starfsnám, sem er reyndar launað, en þeir þurfa að vinna þetta ár til að fá lækningaleyfi þannig að staða þeirra er ekki sambærileg stöðu annars starfsfólks,“ segir Björn. Farið hafi verið yfir starfsumhverfið og vinnuaðstöðuna með kandídötunum nú, líkt og gert sé á hverju ári. „Algengt er að það sé misskilningur í gangi hjá ungu fólki þegar það kemur út á vinnumarkaðinn. Það reynir reyndar ekki á þetta fyrr en seinni hluta sumars því flestir eiga ekki að koma til vinnu fyrr en þá. Þeir sem áttu að byrja 1. júní skrifuðu margir undir eftir að hafa fengið þessar upplýsingar.“ Ómar er ekki sammála greiningu Björns á stöðu mála. „Auðvitað eru kjarasamningar í gildi en það eru lágmarkslaun og alþekkt að starfsmenn spítalans fái hærri laun en þeim nemur,“ segir hann. „Það er býsna stíft hljóð í hópnum og þessum viðræðum er engan veginn lokið,“ segir Ómar. Björn segir það ekki setja starfsemi spítalans úr skorðum þótt kandídatarnir velji að fara annað. Það myndi hins vegar kalla á endurskipulagningu á starfseminni. „En ég vona að til þess komi ekki. Spítalinn virðir kjarasamninga og hefur alltaf gert.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira