Innlent

Lögreglumaður káfaði á stúlku

Þrír héraðsdómarar komust að þeirri niðurstöðu að sakfella bæri manninn.
Þrír héraðsdómarar komust að þeirri niðurstöðu að sakfella bæri manninn.
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt fyrrverandi lögregluvarðstjóra í hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára dóttur vinahjóna sinna. Honum er jafnframt gert að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur.

Maðurinn þjálfaði unglinga í íþróttastarfi og tók á móti stúlkunni á hlaupaæfingu við heimili sitt að morgni til. Það var þar sem hann káfaði innanklæða á rassi stúlkunnar, strauk með fingrum um klof hennar innanklæða, stakk síðan fingrunum upp í sig og sagði stúlkunni að hún væri flott, eins og brotinu er lýst í ákæru.

Maðurinn þvertók fyrir að hafa brotið gegn stúlkunni og fékk það stoð í framburði sonar hans, sem sagðist hafa rokið fram úr rúminu þegar stúlkan var á leið að húsinu og séð glögglega að ekkert óeðlilegt hefði átt sér stað.

Dómurinn tekur hins vegar meira mark á framburði stúlkunnar en nývaknaðs sonar ákærða í málinu. Framburður stúlkunnar var stöðugur allan tímann og hegðun hennar strax í kjölfar brotsins þykir benda eindregið til þess að maðurinn hafi gerst sekur um það sem hann var ákærður fyrir.

Maðurinn hafði áður verið sýknaður í héraði en Hæstiréttur ógilti dóminn og vísaði aftur í hérað.- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×