Lífshættuleg flog vegna lyfja 27. júní 2012 07:00 Lyfjastofnun hefur borist tólf kvartanir það sem af er ári vegna þriggja samheitalyfja fyrir flogaveikisjúklinga. Fréttablaðið/Valli
Ný samheitalyf við flogaveiki hafa að undanförnu orsakað alvarleg flog hjá sjúklingum. Dæmi eru um að einstaklingar sem hafa verið lausir við flog í mörg ár verði alvarlega veikir eftir að hafa verið teknir af lyfinu Keppra og settir á samheitalyf. „Á síðustu mánuðum höfum við séð marga flogaveika sem fengið hafa flog eftir að hafa skipt úr Keppra í samheitalyf, jafnvel fólk sem ekki hefur fengið flog í mörg ár," segir Elías Ólafsson, yfirlæknir á taugalækningadeild Landspítalans. „Í sumum tilvikum er um að ræða mjög alvarleg flog, jafnvel lífshættuleg." Um er að ræða þrjú samheitalyf Keppra við flogaveiki; Zelta, Mataver og Levetiracetam Actavis. Elías getur ekki fullyrt, á þessu stigi, að þetta gildi um þau öll. Lyfjastofnun hafa borist tólf ábendingar vegna aukaverkana eða vanverkunar lyfjanna það sem af er ári, þar af sjö vegna Levetiracetam, fjórar vegna Mataver og eina vegna Zelta. Elías segir þessa vanverkun lyfjanna hafa komið á óvart. „Við höfum haft samband við Landlækni og Lyfjastofnun vegna málsins og embættin hafa brugðist vel við," segir hann. Elías segir að það sé þessara aðila að ákvarða hvort reynt verði að kynna þetta mál sérstaklega fyrir almenningi. Guðrún Gylfadóttir, deildarstjóri lyfjadeildar Sjúkratrygginga, segir stofnunina hafa heyrt af vandamálinu. Því hafi verið ákveðið að veita sjúkraskírteini vegna Keppra áfram, óski læknar eftir því fyrir sjúklinga sína, en með því er hægt að fá fulla greiðsluþátttöku þrátt fyrir að ódýrari samheitalyf séu á markaði. Um 540 einstaklingar fengu ávísað Keppra í fyrra og var kostnaður Sjúkratrygginga um 152 milljónir króna. „Læknir getur sótt um lyfjaskírteini fyrir Keppra í þeim tilvikum þegar samheitalyf reynast ekki jafn vel en einnig þegar læknir metur svo að breyting á lyfjameðferð sem búið er að stilla sjúkling inn á sé ekki réttlætanleg," segir Guðrún. Búið er að framvísa 150 slíkum skírteinum síðan í mars. Mímir Arnórsson, deildarstjóri hjá Lyfjastofnun, segir samheitalyfin sem um ræðir hafa sama virka innihaldsefni og Keppra, en vissulega sé tekið mark á athugasemdum sem berast. „Við höfum fengið ábendingar um þessi lyf og þá er þetta skráð sem vanverkun," segir hann. „Við söfnum þeim saman og ef slíkt er mjög títt þá getur það leitt til þess að lyfin verði tekin af markaði." - sv
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Handtekinn vegna stunguárásarinnar Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Fleiri fréttir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent