Innlent

Töluvert tjón í eldsvoða á Selfossi

Mynd: Kristófer Helgason.
Mynd: Kristófer Helgason.
Töluvert tjón varð á húsnæði og á munum innanstokks, þegar eldur kviknaði í nytjamarkaði Hvítasunnusafnaðarins vi Eyrarveg á Selfossi í gærkvöldi.

Talið er að einhver hafi kveikt í ruslagámi við húsið, sem stendur gengt Hótel Selfossi, og eldurinn borist inn í viðbyggingu bakatil við húsið.

Fjölmennt slökkvilið slökkti eldinn á skömmum tíma og reykræsti húsið, sem er í eigu sveitarfélagsins.

Þá var tilkynnt um eld á þriðju hæð í húsi við Laugaveg í Reykjavík í gærkvöldi. Þar virðist hafa kviknað í neyðarútgangsljósi og var lítill eldur en talsverður reykur, sem slökkviliðið ræsti út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×