Innlent

Um 400 manns bíða afplánunar í fangelsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Páll Winkel fagnar því að til standi að byggja nýtt fangelsi.
Páll Winkel fagnar því að til standi að byggja nýtt fangelsi.
Um 400 manns bíða nú afplánunar í fangelsi. Fjöldinn hefur aldrei verið meiri en nú, en í desember 2010 var hann 350. Fyrir sex til sjö árum voru á bilinu 50-60 manns að bíða eftir afplánun, segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. „Þetta er bara staðreynd og þess vegna erum við alveg gríðarlega ánægðir með það að það eigi að byggja þetta nýja fangelsi og fjölga plássum," segir Páll í samtali við Vísi.

Biðin eftir því að afplána dóma getur því verið mjög löng. Reynt hefur verið að bregðast við vandanum með ýmsum hætti. Til dæmis var opnað fangelsi á Bitru, sem hefur nú verið flutt yfir á Sogn. Þá hefur heimild til þess að beita samfélagsþjónustu verið rýmkuð og tekið hefur verið upp rafrænt eftirlit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×