Ármann með 1,5 milljón á mánuði - launin bara hækkað um 4,4% 12. júní 2012 20:45 Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að heildalaun bæjarstjóra hafi hækkað um 4,4 prósent frá 1. febrúar árið 2009. Hann er með eina og hálfa milljón í laun á mánuði. mynd úr safni
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að heildalaun bæjarstjóra hafi hækkað um 4,4 prósent frá 1. febrúar árið 2009. Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýndu Ármann í dag fyrir þau ummæli sín að 23 prósent hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launa hækkun heldur leiðrétting. Ármann sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem hann segir að grunnlaun bæjarstjóri hafi hækkað um 3,5 prósent 1. mars síðastliðinn samkvæmt ákvörðun kjararáðs. „Bæjarráð Kópavogs ákvað í apríl síðastliðnum að draga til baka 10% launalækkun bæjarfulltrúa frá 1. janúar 2009 og tengja launin við þingfararkaup á nákvæmlega sama hátt og áður. Laun bæjarfulltrúa höfðu staðið í stað frá þeim tíma en í millitíðinni hafði þingfararkaup hækkað um 17%," segir Ármann í yfirlýsingunni. „Laun bæjarfulltrúa eru því nú 27% af þingfararkaupi eins og áður. Það þýðir í krónum talið að laun fyrir setu í bæjarstjórn urðu frá og með 1. mars 164.752 krónur á mánuði en voru 133.928 krónur eftir að tíu prósenta lækkunin tók gildi fyrir rúmum þremur árum. Áður höfðu gengið til baka launalækkanir stjórnenda bæjarins en laun þeirra sem voru með yfir 500 þúsund krónur á mánuði voru lækkuð í maí 2009 um 5 til 10%. Þetta þýðir með öðrum orðum að laun bæjarfulltrúa í Kópavogi voru fyrst til að lækka eftir hrun og síðust til að ganga til baka eftir hrun. Grunnlaun bæjarstjóra Kópavogs voru 1. júní 1.127.821 króna ef með er talinn bifreiðastyrkur en þau hækkuðu um 3,5%, eins og áður sagði, samkvæmt ákvörðun kjararáðs þann 1. mars 2012. Þess má geta að grunnlaun bæjarstjóra Kópavogs voru 1. febrúar 2009 1.070.624 krónur. Auk bæjarstjóralauna fær bæjarstjóri Kópavogs, samkvæmt venju, greitt fyrir setu í bæjarráði, bæjarstjórn og hafnarstjórn og eru heildarlaunin þegar það er talið með því 1.496.988 krónur. Samtals hafa því heildarlaunin hækkað um 4,4 % samanborið við laun bæjarstjóra 1. febrúar 2009," segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Tengdar fréttir Ungir sjálfstæðismenn gagnrýna ummæli Ármanns Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýnir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra og oddvita sjálfstæðismanna í Kópavogi, fyrir þau ummæli sín að 23% hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launahækkun heldur leiðrétting. 12. júní 2012 15:11 Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira
Ungir sjálfstæðismenn gagnrýna ummæli Ármanns Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýnir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra og oddvita sjálfstæðismanna í Kópavogi, fyrir þau ummæli sín að 23% hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launahækkun heldur leiðrétting. 12. júní 2012 15:11