Kjarnafjölskyldum á Ísafirði fækkar gríðarlega BBI skrifar 14. september 2012 11:07 Fjölskylda. Mynd/Getty
Kjarnafjölskyldum í Ísafjarðarbæ fækkaði ört á síðasta ári. Þann 1. janúar voru 34 færri kjarnafjölskyldur í bænum en fyrir einu ári eftir því sem fram kemur á bb.is. Kjarnafjölskyldur eru hjón, fólk í óvígðri sambúð eða einhleypir einstaklingar sem búa með börnum 17 ára og yngri. Frá árinu 2000 til 1. janúar 2012 hefur kjarnafjölskyldum í Ísafjarðarbæ fækkað um 102 fjölskyldur samkvæmt tölum Hagstofunnar frá því í febrúar. Það gerir 8,5 fjölskyldur á ári að meðaltali. Fækkunin virðist hins vegar hafa tekið rækilegan kipp síðasta árið en þá nam fækkunin 34 fjölskyldum. Það er 400% meira en meðaltal síðustu tólf ára. Samkvæmt upplýsingum frá Ísafjarðarbæ fækkaði um 8 börn í grunnskóla bæjarins í ár. Fækkunin var minni en búist var við þar sem fleiri börn fluttu til bæjarins en gert var ráð fyrir. Engu að síður útskrifuðust fleiri börn úr skólanum svo börnum fækkaði á heildina litið. Þó kjarnafjölskyldum fækki þýðir það ekki endilega að fólki fækki jöfnum höndum. Þegar börn komast yfir 17 ára aldurinn hætta t.d. fjölskyldur að teljast kjarnafjölskyldur. Því hefur fólksfækkun á Ísafirði ekki endilega tekið kipp um 400% á síðasta ári líkt og fækkun kjarnafjölskyldna. Bæjarstjóri telur engu að síður að ofangreindar tölur séu í takt við fólksfækkun síðustu ára. Árið 2000 voru kjarnafjölskyldurnar 1.035 í Ísafjarðarbæ. Í ársbyrjun 2012 voru þær orðnar 933. Ári fyrr höfðu þær verið 967.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira