Skattahækkanirnar í ferðaþjónustu áfall Karen Kjartansdóttir skrifar 10. september 2012 12:19 Oddný Harðardóttir er fjármálaráðherra.
Boðaðar skattahækkanir í ferðaþjónustu á Íslandi eru áfall fyrir alla þá sem hafa ákveðið að kynna og fjárfesta í ferðaþjónustu á landinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum evrópskra ferðaskrifstofa sem send var fjölmiðlum í morgun. Í tilkynningunni segir að tillögur ríkisstjórnarinnar, um að hækka virðisaukaskatt í ferðaðþjónustunni úr sjö prósentum í 25 prósent, harðlega gagnrýndar. Hækkanirnar eiga að koma til framkvæmda 1. maí á næsta ári og hugnast þreföldun skatta þeim sem reka ferðaskrifstufur lítt. Í tilkynningunni segir að skattinum sem aðeins beint að ferðamönnum þar sem þeir séu nítíu prósent þeirra sem kaupi sér gistingu á hóteli á Reykjavíkursvæðinu. Með aðgerðunum verði viðsnúningur á sögulegri velgengni Íslands síðustu fimmtán ár. En tekið er sem dæmi að árið 1997 komu 210 þúsund ferðamenn til landsins en árið 2011 voru þeir nær 600 þúsund. Þessi mikla fjölgun sé nýtilkomin og skýrst að miklu leyti af því að ódýrara hafi orðið að ferðast til Íslands undanfarin ár. Í tilkynningunni er haft eftir Tom Jenkins, framkvæmdastjóra Samtaka evrópskra ferðaskrifstofa, að skattahækkanir leiði til verðhækkanna sem geri Ísland aftur að dýrum áfangastað. Hækkunin komi auk þess á versta tíma og valdi ferðaþjónustunni miklum skaða þar sem fyrirtæki hafi þegar gert samninga og prentað bæklinga fyrir næsta ár þar sem miðað sé við fyrri skattlagningu. Fyrirtækin muni ekki geta tekið á sig þessa hækkun -- ekkert fyrirtæki standi undir henni. Þá segir að Íslands sé frábær áfangastaður, með magnaða menningu og náttúru. Skattahækkunin sé mikið áfall fyrir þá sem vilja koma þeim upplýsingum á framfæri við ferðamenn.
Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Fleiri fréttir Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Sjá meira